MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Ingi Björnsson er nýr formaður Íþróttafélagsins Þórs

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Árni Óðinsson fráfarandi formaður Þórs og Ingi Björnsson nýkjörinn formaður Þórs. Mynd: thorsport/Palli Jóh

Á aðalfundi Þórs sem haldinn var í gærkvöld var Ingi Björnsson kjörinn nýr formaður íþróttafélagsins. Ingi tekur við af Árna Óðinssyni sem setið hafði sem formaður síðastliðin 6 ár.

Fyrsta mál á dagskrá fundarins var skýrsla formanns og kom Árni víða við í sinni yfirferð. Árni þakkaði starfsfólki Þórs, sjálfboðaliðum, íþróttafólkinu sem og öllum samstarfs- og styrktaraðilum Þórs fyrir samstarfið. Meðal verkefni aðalstjórnar hafi m.a. verið vinna við stefnumótun félagsins sem unnin er í samstarfi við Háskólann á Akureyri;  Framtíðar skipulag á Þórssvæðinu og næsta nágrenni sem unnið var í samstarfi við Kollgátu og kynnt var á félagsfundi í mars síðastliðnum; Siðareglur Þórs sem hafi verið samþykktar á fundi aðalstjórnar 8. maí 2018. Því næst gaf Árni, Helgu Lyngdal orðið sem kynnti nýjar siðareglur Þórs sem nú eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins og hvatti fólk til þess að kynna sér þær. Helga sagði ennfremur að ef fólk vilji koma ábendingum á framfæri varðandi siðareglurnar þá væri allar ábendingar þar um vel þegnar. Arnar Friðriksson kynnti  ársreikning félagsins. Í máli Arnars kom fram að rekstur á samstæðunni hafi gengið afar vel og þegar upp er staðið var rekstarafgangur samstæðunnar um 8,6 milljónir.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn Þórs að þessu sinni. Úr stjórn fara Árni Óðinsson  formaður síðastliðin 6 ára, Arnar Friðriksson gjaldkeri, Elva Haraldsdóttir meðstjórnandi,  Páll Jóhannesson ritari og Magnús Víðisson áheyrnarfulltrúi unga fólksins. Ingi Björnsson var einn í framboði til  formanns Þórs og var hann samþykktur einróma. Aðrir nýir í stjórn eru; Elma Eysteinsdóttir, Íris Ragnarsdóttir, Kristinn Ingólfsson sem kemur inn sem áhreyrnarfulltrúi unga fólksins. Stjórn Þórs fyrir starfsárið 2018-2019 er því þannig skipuð. Ingi Björnsson formaður, Elma Eysteindóttir, Helga Lyngdal, Íris Ragnarsdóttir, Unnsteinn Jónsson og Þorgils Sævarsson. Varamenn í stjórn, Brynja Sigurðardóttir og Erla Ormarsdóttir og Kristinn Ingólfsson áheyrnarfulltrúi unga fólksins.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026