Indverska kvikmyndahátíðin á Íslandi 2025 teygir anga sína til Akureyrar helgina 18. og 19. október. Tvær myndir af hátíðinni verða sýndar í Sambíóunum á Akureyri. Sendiráð Indlands í Reykjavík stendur að hátíðinni. Aðgangur er ókeypis, en til þess að fá aðgangsmiða þarf að skrá sig hér.
Kvikmyndin Chalo America verður sýnd laugardaginn 18. október kl. 14:20. Myndin fjallar um þrjá háskólastráka sem halda að allt amerískt sé frábært en allt indverskt afturhaldsamt og vandræðalegt. Nánar má lesa um myndina hér.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Kvikmyndin Jaane Bhi Do Yaaron verður sýnd sunnudaginn 19. október kl. 14:20. Hún fjallar um tvo ljósmyndara sem rekast á spillingu hjá byggingarverktaka og taka fyrir slysni mynd af morði. Nánar má lesa um myndina hér.










