Íbúum í Fjallabyggð fjölgar
Eftir María Hjelm·

Íbúum Fjallabyggðar hefur fjölgað um 17 á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár um íbúafjölda sveitarfélaga 1. júlí 2026. Þetta kemur fram á Trölli.is.
Samkvæmt tölunum voru 2.034 íbúar skráðir með lögheimili í Fjallabyggð 1. júlí 2026, en 2.017 íbúar voru skráðir í sveitarfélaginu 1. desember 2025. Fjölgunin nemur því 0,8%.
Þróunin heldur áfram í jákvæða átt, en íbúafjöldi Fjallabyggðar hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










