NTC

Íbúar í Hörgársveit orðnir fleiri en 800

Íbúar í Hörgársveit orðnir fleiri en 800

Samkvæmt samantekt þjóðskrár eru íbúar í Hörgársveit nú 801 og hefur fjölgað um 97 frá 1. desember 2021 og um 32 frá 1. desember 2022. Þetta er 4,2 prósent fjölgun á sama tíma og fjölgunin á landinu öllu er 0,9%.

Hlutfallsleg fjölgun í Hörgársveit er sú mesta á Norðurlandi og sú fjórða mesta á landinu. Það er aðeins í Eyja- og Miklaholtshreppi, Skorradalshreppi og Kaldraneshreppi þar sem hlutfallsleg fjölgun er meiri eða frá sex til þriggja íbúa fjölgun í hverju sveitarfélaga fyrir sig.

Íbúar í Hörgársveit voru 559 í upphafi árs 2015 og hefur því fjölgað um 43% frá þeim tíma. Áætlanir gera ráð fyrir að fjölgunin haldi áfram á næstu árum og í árslok 2025 gætu þeir verið orðnir um 1.000 ef áætlanir ganga eftir.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó