MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Íbúafundur vegna mögulegs eldgoss í Bárðarbungu

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
diamondcircle-318179
kaffid.is

Þingeyjarsveit í samstarfi við Veðurstofuna og Almannavarnir boða til íbúafundar í Ýdölum þann 9. apríl kl. 15-17.

Íbúar fá fræðslu um stöðuna í Bárðarbungu og farið verður yfir áhrif mögulegra flóða í Skjálfandafljóti sem myndu fylgja eldgosi í Bárðarbungu.

Fulltrúi veðurstofunnar fer yfir niðurstöður flóðaútreikninga og fulltrúi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra mun fara yfir gildandi viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu ásamt því að svara fyrirspurnum frá íbúum.

„Það er ákaflega mikilvægt að íbúar séu meðvitaðir um rétt viðbrögð og staðsetningu hjálparstöðva ef til eldgoss kemur og við hvetjum alla til að mæta á fund og fræðast,“ segir á vefsíðu Þingeyjarsveitar.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026