NTC

Hver grípur þig? Frí þjónusta á Norðurlandi

Hver grípur þig? Frí þjónusta á Norðurlandi

„Við vildum að fólk gerði sér grein fyrir hvaða þjónusta er í boði og hvert er hægt að sækja hana þegar aðstoðar er þörf, fólki að kostnaðarlausu. Einnig langar okkur með málþinginu að styrkja samstarfið á milli félaganna, að fulltrúar þeirra séu upplýst um aðra kosti sem eru í boði fyrir fólk og geti bent málum í réttan farveg – eða til viðeigandi félagasamtaka,“ segir Erla Lind Friðriksdóttir um málþing sem hún stendur fyrir ásamt Birnu Guðrúnu Árnadóttur. 

Framsókn

Erla og Birna stunda nám við Heilbrigðisvísindadeild Háskólans á Akureyri, eru þar í meistaranámi og er málþingið lokaverkefnið í námskeiðinu Sálræn áföll og ofbeldi. Erla er í dag ráðgjafi hjá Berginu Headspace sem er úrræði fyrir ungt fólk til þess að koma og fá ráðgjöf, nærveru og spjall. Birna vinnur hjá Bjarmahlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. 

„Við höfðum frjálsar hendur með að útfæra lokaverkefnið og skil á því. Við Birna ræddum þetta og vorum sammála um að þörf væri á að varpa ljósi á það sem er í boði á Akureyri. Það er nefnilega þannig að hér er í boði mikið af þjónustu í boði félagasamtaka og að okkar mati má alveg lyfta því upp,“ segir Erla um ástæðuna fyrir málþinginu.

Framsókn

Málþingið sem um ræðir ber yfirskriftina „Hver grípur þig? Frí þjónusta á Norðurlandi“ þar sem Bjarmahlíð, Bergið Headspace, Aflið, Kvennaathvarfið, Frú Ragnheiður, Píeta og Grófin Geðrækt kynna starfsemi sína. Málþingið er mánudaginn 25. nóvember og markar sá dagur einnig upphaf 16 daga átaks gegn ofbeldi. Málþingið er haldið í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og hefst dagskrá klukkan 12:00 og er áætlað að henni ljúki klukkan 16:00. Þá verður einnig hægt að fylgjast með í streymi fyrir þau sem ekki eiga heimangengt.  Hægt er að finna frekari upplýsingar um viðburðinn á Facebook og einnig á heimasíðu Háskólans á Akureyri. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó