Líkt og undanfarin ár stendur Kaffið.is fyrir vali á manneskju ársins frá Akureyri og nágrenni. Nú geta lesendur tilnefnt manneskjur sem þau telja að eigi titilinn skilið í ár.
Blaðamenn og álitsgjafar Kaffið.is munu svo velja tíu aðila úr tilnefningum og efna til kosningu 20. desember næstkomandi. Úrslit verða síðan tilkynnt á Kaffið.is á gamlársdag.
Tilnefningar má senda í forminu hér að neðan með rökstuðningi fyrir því hvers vegna manneskjan á tilnefninguna skilið.
UMMÆLI