beint flug til Færeyja

Hvað er svifryk og hvað er til ráða?

Hvað er svifryk og hvað er til ráða?

Akureyrarbær hefur birt ráðstafanir sem hægt er að grípa ti þegar svifryk í bænum er mikið. Á vef Akureyrarbæjar og í Akureyrarbæjar-appinu er hægt að fylgjast með styrk svifryks. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að prófa appið en það er hægt að sækja bæði í gegnum Appstore og Google Play.

Svifryk eru smágerðar agnir sem svífa um í andrúmsloftinu. Umferð og uppþyrlun göturyks eru meðal helstu uppspretta svifryks í þéttbýli. Áhrif á heilsu fólks eru að miklu leyti háð stærð agnanna. Fínustu agnir geta auðveldlega komist niður í lungu og stuðlað að og ýft upp öndunarfærasjúkdóma. Aldraðir, börn og þeir sem eru með undurliggjandi öndunarfæra- og/eða hjartasjúkdóma eru viðkvæmasti hópurinn.

Hér eru nokkrar ráðstafanir sem hægt er að grípa til þegar svifryk er mikið.

Minni bílaumferð: Það er frítt í strætó á Akureyri og því um að gera að nýta sér almenningssamgöngur. Einnig er gott ráð að sameinast í bíla, hjóla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta.

Takmarka útiveru: Sérstaklega börn, eldri borgarar og einstaklingar með öndunarfæra- eða hjartasjúkdóma ættu að halda sig innandyra þegar styrkur svifryks er yfir mörkum.

Halda gluggum lokuðum: Þetta kemur í veg fyrir að ryk berist inn í húsnæði.

Nota grímur utandyra: Andlitsgríma, sem síar fínt ryk, gæti hjálpað ef nauðsynlegt er að vera úti.

Takmarka notkun nagladekkja: Nagladekk stuðla að svifryki, og notkun þeirra ætti að vera í lágmarki – ef aðstæður leyfa.

Sambíó

UMMÆLI