MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Húsvíkingar hvattir til að skreyta fyrir Mærudaga

Eftir María Hjelm·
r
kaffid.is

Bæjarhátíðin Mærudagar er árlegur viðburður á Húsavík síðustu helgina í júlí og stemningin byrjar löngu áður en hátíðin sjálf hefst. Þegar fánarnir, litirnir og skreytingarnar fara að birtast um bæinn er vitað að Mærudagar eru að nálgast. Skorað hefur verið á Húsvíkinga að sameinast í skreytingarátaki. Þetta kemur fram á vef Norðurþings.

Á hverju ári hafa sjálfboðaliðar úr hverfisnefndum lagt mikla vinnu í að skreyta bæinn og skapa þá einstöku hátíðarstemningu sem svo margir tengja við Mærudaga. Undanfarin ár hefur hópurinn hins vegar farið minnkandi og því vantar fleiri hendur til að halda þessari fallegu hefð áfram. Með þátttöku íbúa og lifir þessi fallega hefð áfram og saman getum við skapað þá einstöku Mærudagastemningu sem svo margir kunna að meta. Við ætlum að skreyta fimmtudaginn 16. júlí og föstudaginn 17. júlí og stefnum á að hefja vinnu fyrir hádegi, um kl. 10. Hvort sem þú getur hjálpað í stutta stund eða lengur skiptir það máli. Allar hendur, stórar sem smáar, skiptir máli og öll aðstoð er hjartanlega vel þegin. Ef þú vilt vera með geturðu sent tölvupóst á nele@nordurthing.is, svo reynum við að samræma verkefnin. Þú getur líka einfaldlega komið og slegist í hópinn þar sem þú sérð okkur að störfum. Tökum þátt í að gera Húsavík sem hátíðlegasta fyrir Mærudaga – við hlökkum til að sjá sem flesta!

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026