Hundakvöld í Listasafninu á Akureyri
Eftir María Hjelm·

Fimmtudaginn 11. júní verða hundum og eigendum þeirra boðið að koma í Listasafnið á Akureyri á sérstakt hundakvöld.
Safnið verður opið frá klukkan 19 til 21 og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda.
Léttar veitingar verða í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Ketilkaffi verður opið fram eftir kvöldi og þar verður hægt að kaupa veitingar fyrir besta vininn.
Allir hundar þurfa að vera í taumi inni á Listasafninu og eru á ábyrgð eigenda sinna. Verkefnið er styrkt af Gæludýr.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










