Hulda Ólafsdóttir sýnir í Deiglunni
Eftir María Hjelm·

Hulda Ólafsdóttir sýnir í Deiglunni á Akureyri helgina 17.-19. júlí. Hún byrjaði að mála snemma á þessu ári og sýnir nú afraksturinn. Myndefnið er fjölbreytt—frá englum til abstrakt, blómum, landslagi, andlitum, eða því sem hefur heillað hana á hverju augnabliki.
Hulda stundaði nám í Myndlistarskólanum á Akureyri, nám í tískuhönnun á Ítalíu og síðar grafíska hönnun. Á undanförnum árum hefur hún opnað sig fyrir nýjum leiðum í skapandi ferli sínu og andlegum málum. Hún hefur lært markþjálfun, heilun, Reiki og dáleiðslu, og rekur fyrirtækið Hjartalag. Einnig skrifar hún ljóð og texta sem hún notar víða í sinni hönnun.
Þessi sýning er hennar fyrsta sölusýning á akrýlverkum.



Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










