Hulda Guðmundsdóttir var kjörin nýr formaður Kjalar á aðalfundi félagsins síðastliðinn fimmtudag, 26 mars. Á fundinum sem fór fram í Hofi á Akureyri var farið yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og helstu verkefni sem eru framundan.
Fráfarandi formaður, Arna Jakobina, fór yfir skýrslu stjórnar og kom fram í ræðu hennar að starf félagsins einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri þjónustu og áframhaldandi eflingu félagsins. Í lokaorðum sínum lagði hún áherslu á mikilvægi samstöðu og að félagið væri fyrir félagsfólkið.
„Stéttarfélag er fólkið sjálft – samstaða þess og vilji til að standa saman þegar á reynir. Ég er ánægð með það sem hefur áunnist og óska félaginu og þeim sem taka við alls hins besta í framtíðinni.“
Þá samþykkti aðalfundur tvær ályktanir þar sem gagnrýnd eru áform stjórnvalda um afnám áminningarskyldu annars vegar og ályktun vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hins vegar.
Hulda Guðmundsdóttir sleit fundi og sagði ,,ég hlakka mikið til að taka þetta hlutverk að mér, vinna með ykkur og halda áfram að byggja upp sterkt og öflugt stéttarfélag fyrir Kjalar fólk.“






