Farið verður í hugmyndasamkeppni um nýtingu á lóðinni sem Akureyrarvöllur stendur á í dag, á besta stað í bænum. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Völlurinn er, samkvæmt gildandi aðalskipulagi, skilgreindur sem þróunarsvæði. Það er því í höndum Akureyringa að ákveða hvað tekur við á svæðinu.
„Við erum alveg á því þessi bæjarstjórn sem er að fara frá núna að það sé réttast að setja þetta í hugmyndasamkeppni og sjá hvað kæmi út úr því,“ segir Þórhallur Jónsson, formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar við RÚV.
„Ég efast ekki um að það verði rifist en ég ætla vona að komandi bæjarstjórn standi í lappirnar og búi til peninga úr þessu svæði því þetta er stórt tækifæri.“