
Þriðjudaginn 7. nóvember kl. 17-17.40 heldur Hugleikur Dagsson Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Hugleikir. Á fyrirlestrinum mun hann fjalla um 15 ára feril sinn sem sjálfstætt starfandi höfundur myndasagna, leikrita, sjónvarpsþátta og uppistands. Hugleikur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2002. Aðgangur er ókeypis.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Síðasti fyrirlestur ársins heldur bandaríska myndlistarkonan Jessica Tawczynski, þriðjudaginn 14. nóvember. Fyrirlestraröðin hefst að nýju um miðjan janúar 2018.











