MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hríseyjarbúðin fær styrk frá Innviðaráðuneytinu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hriseyjarbudin
kaffid.is

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til verslana í dreifbýli. Að þessu sinni var átján milljónum króna úthlutað til sex verslana í dreifbýli fyrir árið 2026. Hríseyjarbúðin ehf. fær 3 milljón króna styrk vegna rekstrar.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að markmiðið með styrkjunum sé að styðja við dagvöruverslanir í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Ýmist eru veittir rekstrarstyrkir eða styrkir til endurbóta eða sjálfvirknivæðingar. Styrkirnir eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. 

Samtals bárust tíu umsóknir fyrir samtals 64,4 m.kr. Eftirtaldar verslanir fengu styrki:

  • B12-Bryggjan ehf. á Þingeyri – 4 m.kr. vegna opnunar verslunar.
  • Bakka-Búðin ehf. á Reykhólum – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Hríseyjarbúðin ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Stöðfirska verzlunarfélagið ehf – 2 m.kr. vegna opnunar verslunar á Stöðvarfirði.
  • Verslunarfélag Drangsness ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Verzlunarfjelag Árneshrepps ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar í Norðurfirði.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerðu tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar.

Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026