Þær breytingar urðu nú um áramótin að dreifingu og notkun ferjumiða til lögheimilisíbúa í Hrísey verður hætt. Þetta segir í tilkynningu á heimasíðu Hríseyjar.
Samkvæmt tilkynningu hafa Akureyrarbær og Almenningssamgöngur unnið að því í sameiningu að finna hagkvæmari og umhverfisvænni lausnir en gömlu grænu og rauðu miðana. Framvegis verður fjöldi íbúa í hverri ferð talinn og skráður beint inn í rafrænt kerfi. Verklag helst óbreytt fyrir þau sem eru með afsláttarmiða og þau sem kaupa stakar ferðir.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Óneitanlega eru þetta viðbrigði fyrir bæði farþega og starfsfólk ferjunnar. Eyjaskeggjar eru beðnir um að sýna skilning og kurteisi ef óskað er eftir staðfestingu á lögheimili eða nafni.










