Hraðahindranir settar upp vegna Bíladaga
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina og því hafa verið settar upp hraðahindranir víða í bænum líkt og undanfarin ár.
Á Instagram síðu Akureyrarbæjar má sjá starfsmenn framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar í óða önn að setja upp hraðahindranir víðsvegar um bæinn vegna Bíladaga sem hefjast á föstudaginn.
Hraðahindranir eru meðal annars settar upp í Gilinu eins og má sjá á myndinni. Dagskrá Bíladaga má finna á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar, www.ba.is/biladagar-2019.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










