Hörgársveit auglýsir byggingarlóðir við Lónsveg
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Hörgársveit hefur auglýst tvær nýjar lóðir við Lónsveg 1 annars vegar og Lónsveg 3 hinsvegar lausar til umsóknar, stefnt er að því að þær verði byggingarhæfar vorið 2027. Lóðin við Lónsveg 1 er ætluð fyrir þriggja til fjögurra hæða byggingu undir verslun, þjónustu og atvinnustarfsemi. Lóðin við Lónsveg 3 er ætluð undir fjölbýlishús, þar sem heimilt verður að reisa tvö tveggja hæða hús með samtals 14 íbúðum.

Tengdar greinar
Uppfært: 17. september 2026










