Holtsels Hnoss – heimagerður ís beint frá býli í 20 ár

Holtsel er kúabú í Eyjafirði þar sem ísgerðin Holtsels Hnoss og lítil sveitaverslun er rekin af Örnu Mjöll Guðmundsdóttur, Styrmi Frostasyni og Fjólu Kim Björnsdóttur. Þau eru ungir bændur og fjórða kynslóð í sömu fjölskyldu til að reka búið. Ísframleiðsla hófst í Holtseli árið 2006, sem var mikil frumkvöðlastarfsemi á sínum tíma.
„Sumarið í ár fór aðeins hægar af stað en undanfarin ár vegna veðurs, en frá seinni hluta júní hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur,“ segja bændurnir á Holtseli.
Holtsels Hnoss hélt upp á 20 ára afmæli þann 27. júní síðastliðinn með hoppukastala, heimagerðu brisketi, pylsum, afmælisköku og auðvitað fullt af ís.
„Við erum afar stolt af þessu fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt heimagerðan ís og selt vörur beint frá býli í 20 ár. Við hefðum aldrei trúað því að Holtsels Hnoss yrði svona stór hluti af sumri svo margra. Það gleður okkur að sjá hversu margir leggja leið sína til okkar ár eftir ár. Margir sem komu hingað sem börn eru nú farnir að koma með sín eigin börn.“
Ýmislegt nýtt í boði og þjónustan aukin.
„Nýjast hjá okkur er að við höfum bætt við vöfflum, kökum og kaffidrykkjum, þannig að nú geta gestir einnig komið til okkar í kaffi yfir sumarið. Við höfum einnig farið að leigja út salinn fyrir litlar veislur og viðburði og það hefur gengið vonum framar.“
Vinsælasti ísinn ár eftir ár er saltkaramelluís með smjöri og karamellubitum.
„Í ísborðinu eru nú 24 tegundir af heimagerðum ís og við leggjum okkur fram um að skipta reglulega út tegundum, þannig að jafnvel fastagestir geti alltaf fundið eitthvað nýtt til að smakka. Nýjasta bragðið er bananaís með súkkulaðisósu og hrískúlum, sem hefur slegið í gegn. Við höfum einnig verið að þróa úrval af sorbetísum sem eru bæði mjólkur- og eggjalausir. Í sumar höfum við meðal annars boðið upp á kók, mangó og ananas, greipaldin og rabarbara með jarðarberjum.“
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










