Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, hafa fært skurðlækningadeild þrjár göngugrindur að gjöf. Bryndís María Davíðsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar, segir í tilkynningu frá SAk að göngugrindurnar muni nýtast sjúklingum vel og fjölmargir komi til með að hafa not fyrir þær.
„Þannig að gjöfin gagnast svo sannarlega vel og erum við Hollvinum þakklát fyrir þeirra stuðning,“ segir Bryndís María. Jóhannes G Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina segir að það sé venju samkvæmt gleðilegt að geta fært deildum Sjúkrahússins á Akureyri búnað sem gagnist sjúklingum.
Skurðlænkingadeild hefur nú einnig tekið í notkun nýja dagstofu fyrir sjúklinga. Bryndís segir það ákaflega gott að geta boðið sjúklingum upp á rými til að setjast niður með aðstandendum eða nýta með þeim hætti sem hentar þegar fólk vill vera utan sjúkrarýma.










