MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hollvinir færa sjúkrahúsinu lyfjadælur

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
IMG_3234-1920w
Ljósmynd: Hollvinir.is· kaffid.is

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri hafa nýverið afhent sjúkrahúsinu tíu CADD-lyfjadælur. Um er að ræða litlar, rafknúnar dælur sem notaðar eru til að gefa sjúklingum lyf stöðugt eða eftir þörfum yfir ákveðinn tíma. Þær eru einkum nýttar í verkjameðferð og í líknarmeðferð, þar sem þörf er á nákvæmri og samfelldri lyfjagjöf.

„Þetta eru mjög mikilvægar gjafir, sér í lagi þar sem þær dælur sem eru til á SAk eru orðnar barn síns tíma og fáar eftir sem hægt er að nota,“ segir Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri á lyflækningadeild.

Hollvinasamtök SAk hafa um árabil stutt við starfsemi sjúkrahússins með margvíslegum hætti og lagt sitt af mörkum til að efla þjónustu og aðbúnað sjúklinga.

„Það er okkur í Hollvinasamtökunum mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra,“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina . „Við vitum að þessi búnaður getur haft raunveruleg áhrif á líðan fólks á erfiðum tímum og erum stolt af því að styðja við starfsemi sjúkrahússins með þessum hætti.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026