Eins og fjölmiðlar hafa greint frá hefur snjó hreinlega kyngt niður á Akureyri síðustu daga. Í gær, mánudag mældist snjódýptin í bænum 105 sentímetrar. Í aðstæðum sem þessum getur reynst erfitt viðhalda götum og bílaplönum færum og því fengu starfsmenn Bílasölu Hölds að kenna á í gær.
Sjá einnig: Akureyri þakið snjó og jólaljósum – Myndir
Eins og sjá má að myndum sem fyritækið birti í gær eru aðstæður til að skoða rúnta um bílasöluna afar erfiðar og mikið verk bíður þeirra sem starfa á sölunni. „Það verður nóg að gera hjá okkur í snjómokstri næstu daga,“ segir í færslu sem bílasalan birti á Facebook í gær og vakið hefur mikla athygli.