MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Höldur-Bílaleiga Akureyrar hlaut Hvatningarverðlaun VÍS

Eftir Ingólfur Stefánsson·
holdur-vis-verdlaun
kaffid.is

Höldur-Bílaleiga Akureyrar hlaut þar Hvatningarverðlaun VÍS fyrir góðan árangur í forvarnar- og umhverfismálum. Forvarnaráðstefna VÍS var haldin á dögunum en yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Öryggi á okkar vegum og þemað umferðaröryggi í víðu samhengi.

„Öryggismál hafa um árabil verið órjúfanlegur þáttur í starfsemi Hölds, bæði gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum. Markviss og skýr upplýsingagjöf er þar lykilþáttur. Við erum afar stolt af verðlaununum frá VÍS fyrir góðan árangur í markvissu forvarnarstarfi,“ segir í umfjöllun á vef Bílaleigu Akureyrar.

„Öryggisnefnd hefur aðgang að sérstöku upplýsingasvæði þar sem fram kemur staða öryggismála á öllum starfsstöðum fyrirtækisins. Þar er m.a. að finna yfirlit yfir stöðu áhættumata og niðurstöður mánaðarlegra eldvarna- og öryggiseftirlits sem unnið er í appi. Jafnframt er þar yfirlit yfir skráð atvik og ábendingar frá starfsfólki og stöðu úrbóta. Verktakar sem starfa fyrir fyrirtækið fá upplýsingar um kröfur fyrirtækisins um öryggis- og umhverfismál og er skylt að starfa í samræmi við þær kröfur.“

Tengdar greinar

Uppfært: 26. apríl 2026