Framsókn

HMS eflir starfsemi sína á landsbyggðinni og flytur fimm störf til Akureyrar

HMS eflir starfsemi sína á landsbyggðinni og flytur fimm störf til Akureyrar

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hyggst efla starfsemi sína á landsbyggðinni með því færa verkefni á sviði brunabótamats á starfsstöð HMS á Akureyri. Fimm opinber sérfræðistörf, þar af eitt stjórnunarstarf, verða flutt til Akureyrar og nýtt teymi stofnað um verkefnin. Framvegis verður 21 stöðugildi á starfsstöð HMS á Akureyri. Breytingarnar eru hluti af endurskipulagningu eftir að verkefni tengd fasteignaskrá voru færð til HMS í fyrra. Starfsfólk sem áður sinnti þessum verkefnum er komið í önnur störf. Störfin fimm verða öll auglýst á næstu dögum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti breytingarnar á fundi í starfsstöð HMS á Akureyri í gær. Hann sagði þær vera fullkomlega í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni og að þær féllu einnig vel að stefnu HMS sem væri með öfluga starfsemi á nokkrum stöðum um landið.

„Við fögnum því að opinberum störfum fjölgi á landsbyggðinni. Ég hef í ráðherratíð minni beitt mér fyrir því að fólk eigi kost á að vinna fjölbreytt opinber störf um land allt, ýmist með því að efla opinberar stofnanir á landsbyggðinni, flytja sérhæfð störf eða efla tækifæri til að vinna störf án staðsetningar. Það er einnig viðvarandi verkefni að efla innviði til að fólk hafi raunverulegt val um hvar það býr og starfar. Akureyri hefur ríku svæðisbundnu hlutverki gegna sem stærsti þéttbýliskjarni á landsbyggðinni og því er ánægjuefni að fá þessi sérfræðistörf í bæinn,“ sagði Sigurður Ingi.

„Flutningur starfa hefur góða raun hjá HMS. Nú eru breyttir tímar og tæknin vinnur með okkur. Stofnunin er ekki lengur eitt hús, heldur vinnum við í mörgum teymum um land allt, á Akureyri, í Borgarnesi, Reykjavík og á Sauðárkróki,“ segir Hermann Jónasson, forstjóri HMS. „Við ætlum að festa í sessi öflugt teymi á Akureyri sem fer með ábyrgð og framkvæmd skráningar fasteigna á öllu Íslandi. Það mun sjá um brunabótamat og endurskoða framkvæmd þess allt frá lagalegri umgjörð til tæknilegrar útfærslu. Samhliða ætlum við að hefja átaksverkefni við afmörkun eigna í landeignaskrá og birta í stafrænni kortasjá HMS. Við stefnum fljótlega að því að opna vefsjá landeigna þar sem afmörkun og þinglýst eignarhald lands verður gert aðgengilegt öllum án gjaldtöku,“ sagði Hermann.

HMS er með starfsstöðvar á Akureyri, í Borgarnesi, á Sauðárkróki og í Reykjavík en stofnunin er í nánu samstarfi við sveitarfélög um allt land.

Sambíó

UMMÆLI