Í júlí var hlýjast á Norðurlandi af öllum landshlutum. Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Torfum í Eyjafirði, 12,8 stig. Meðalhitinn á Akureyri var 12,7 stig, 1,5 stigum meira en meðallag síðustu tíu ára.
Hæsti hitinn í mánuðinum mældist í Fnjóskadal 25. júlí, 27,7 stiga hiti. Slíkur hiti hefur ekki mælst hér á landi síðan í ágúst 2012.
Á Ólafsfirði og Siglufirði hefur júlí ekki verið heitari í 20 ár.
UMMÆLI