Framsókn

Hljómsveitin Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu

Hljómsveitin Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu

Hljómsveitin Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu í dag 25.febrúar. Platan sem ber nafnið Royal Inbreed kom reyndar út í desember 2020 en hefur aðeins verið fáanleg á vinyl allt þar til í dag.

Toymachine var stofnuð á Akureyri árið 1996 af þeim Jens Ólafssyni (Söngur, raddir), Baldvin Z (trommur), Atla Hergeirssyni (bassi) og Kristjáni Örnólfssyni (gítar). Undirbúningur fyrir þessa fyrstu plötu bandsins var í fullum gangi árið 2001 þegar upp úr sauð og meðlimir slökktu í framhaldinu á Toymachine.

Núna, 20 árum síðar hefur vélin verið ræst upp á nýtt og er loks komin út þessi langþráða plata sem geymir 10 lög úr smiðju bandsins en í nýjum upptökum. Platan var tekin upp í ágúst mánuði 2020 í Stúdíó Hljóðverk í Reykjavík þar sem Einar Vilberg ræður ríkjum, en Einar sá einmitt um upptökur og hljóðblöndun ásamt því að aðstoða bandið við útsetningar að hluta. Það er hljómsveitin sjálf sem sér um útgáfu plötunnar í samstarfi við Bandaríska fyrirtækið ONErpm sem sér m.a um markaðs og dreifingarmál.

Nokkur myndbönd munu fylgja eftir útgáfunni í netheimum og mun það fyrsta líta dagsins ljós í dag á opinberri YouTube rás Toymachine.

Toymachine stefnir á útgáfutónleika síðar á árinu, eða þegar slíkir viðburðir verða leyfilegir á ný.

Sambíó

UMMÆLI