Hlíðarfjall opnar í dag
Eftir Ingibjörg Bergmann·

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 16 í dag og verður opið til kl. 19. Lyfturnar sem verða ræstar eru Fjarkinn, Hólabraut og Töfrateppið. Skíðaleiðir sem hafa verið troðnar eru Suðurgil, Hólabraut, Rennslið, Hólabraut niðri og að sjálfsögðu Töfrateppið en nú er orðið ókeypis í Hólabrautina.
Veðurútlitið er gott og mikil snjókoma í kortunum.
Frekari upplýsingar um opnun eru að finna hér: https://www.hlidarfjall.is/is/opnunartimi.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










