Hlaupakona UFA í hópi tíu bestu á EM í utanvegahlaupum

UFA átti þrjá keppendur á EM í utanvegahlaupum sem fór fram helgina 5.-7. júní, þau Elísu Kristinsdóttur, Önnu Berglindi Pálmadóttur og Þorberg Inga Jónsson. Þau stóðu sig öll með prýði og Elísa fagnaði góðu gengi þegar hún hafnaði í níunda sæti í kvennaflokki. Elísa er einn fremsti utanvegahlaupari landsins og gekk til liðs við UFA í lok árs 2025.
„Þetta gekk alveg eins og í sögu og við UFA fólk skiluðum góðu dagsverki. Öll náðum við þeim tímamarkmiðum sem við höfðum sett okkur og Elísa auðvitað með frábæran árangur að ná níunda sæti á þessu gríðarsterka móti. Leiðin var stórkostleg, langt skemmtilegt klifur í byrjun og svo minni hækkanir og lækkanir, ýmist á góðum stígum eða tæknilegri skógarstígum. Náttúran þarna er stórkostleg, allt svo grænt og fallegt. Stemningin í hópnum var mjög góð og góður liðsandi og samstaða hjá öllum. Við vorum á glænýju hóteli þar sem við vorum allra fyrstu gestirnir og vel að öllu staðið hjá mótshöldurum,“ segir Anna Berglind.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










