MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hjaltastaðir fá 1,6 milljóna styrk

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hjaltastadi
kaffid.is

Hjaltastaðir hafa hlotið 1,6 milljóna krónu styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis fyrir verkefnið „Frá vansæld til tengsla og þátttöku“.

„Þessi styrkur skiptir okkur gríðarlega miklu máli og er mikilvæg viðurkenning á þeirri hugmyndafræði og framtíðarsýn sem Hjaltastaðir standa fyrir. Markmið okkar er að þróa nýtt stuðningsúrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á einhverfurófi og/eða með fjölþættan geðrænan vanda sem hafa átt erfitt með að finna sinn stað innan hefðbundinna þjónustukerfa. Við viljum skapa umhverfi þar sem félagsleg tengsl, merkingarbær iðja, þátttaka og tilgangur eru í forgrunni – þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum,“ segir á samfélagsmiðlum Hjaltastaða

Í verkefninu „Frá vansæld til tengsla og þátttöku“ er áhersla á merkingarbæra iðju, félagsleg tengsl, val, áhrif og tilgang, þar sem náttúra, dýr og ræktun eru meðal verkfæra. Verkefnið sækir meðal annars fyrirmyndir til BijBram í Hollandi og Sli Eile á Írlandi og er þróað með virkri þátttöku notenda, aðstandenda, jafningja og fagfólks.

„Styrkurinn færir okkur skrefi nær því að þróa verkefnið áfram og gera framtíðarsýn okkar að veruleika. Við höfum mikla trú á þessu verkefni og vitum hversu brýn þörfin er fyrir nýjar leiðir og úrræði. Saman sköpum við rými til að vaxa,“ segir í tilkynningu Hjaltastaða.

13 verkefni hlutu styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis að þessu sinni og námu styrkupphæðirnar frá 400.000 kr. til 2.500.000 kr.

Auk Hjaltastaða fékk til að mynda Bergið styrk fyrir verkefnið „Bergið nær lengra“ sem felur í sér tveggja ára þróun og innleiðingu á þjónustulíkani Bergsins á Austurlandi og Vestfjörðum. Byggt verður á reynslu Bergsins af þjónustu á Akureyri og Grenivík til að þróa sjálfbært og yfirfæranlegt líkan sem eykur jafnt aðgengi ungmenna 12–25 ára að snemmtækum geðheilbrigðisstuðningi óháð búsetu.

Nánar má lesa um alla styrktarhafa á vef Geðhjálpar hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 30. október 2026