NTC

Hinsta brot Norðurslóða – Gjörningur í Deiglunni á degi jarðar


Nemendur í Heimskautarétt við Háskólann á Akureyri munu túlka sinn skilning á ástandinu á Norðurslóðum og sýna gjörning í Deiglunni kl. 16, sunnudaginn 22. apríl, á Degi Jarðar.

⹂Við erum Norðurslóðir. Við erum öll íbúar Norðurslóða“
Norðurslóðir eru nauðsynlegar fyrir afkomu mannkyns. Norðurslóðir hafa mikilvæg skilaboð til okkar og listin er besti miðillinn til að koma skilaboðunum áfram. Við viljum hafa áhrif með listinni og við bjóðum þér að fylgjast með og vera með,” segir hópurinn í tilkynningu sinni.

Gjörningurinn sem er kallaður ‘Hinsta brot Norðurslóða’ leggur áherslu á vandamálin sem hlýnun jarðar og loftlagsbreytingar eru og valda skaða á þessu viðkvæma svæði mun hraðar en annarsstaðar
í heiminum. Það sem gerist á Norðurslóðum mun ekki haldast á Norðurslóðum því við öll, hvar sem við búum, erum undir því komin. Við tengjumst öll því sem eftir er af Norðurslóðum, allt til hins hinsta brots Norðurslóða.

Nemendurnir sem standa að gjörningnum eru: Valeriya Posmitnaya, Daniela Toma, Danforth Oghigian,
Apostolos Tsiouvalas og Carla Albrecht.

Sambíó

UMMÆLI