Næsta sumar verður haldin hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra dagana 18. til 21. júní 2025. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að markmið hátíðarinnar sé að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti.
Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.
Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni. Sveitarfélögin vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu. Fyrsti formlegi samstarfsfundurinn var í gær.
Þau sem vilja koma hugmyndum á framfæri, geta haft samband við Elísabet Ögn verkefnastjóra atvinnu- og menningarmála hjá Akureyrarbæ en hún er tengiliður undirbúningshópsins, elisabetogn(hjá)akureyri.is
Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.