Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra dagana 18.–21. júní
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Dagskráin fer óðum að skýrast og meðal þess sem boðið verður upp á eru námskeiðin Raddir gegn hatri og Hinnblástur auk tónleika, sögukvölds og hinsegin sögugöngu. Að venju verður glæsileg dagskrá í Hrísey með gleðigöngu, regnbogamessu, sundlaugardiskói, tónleikum og músíkbingói.
Akureyrarbær hvetur einstaklingar, félög og fyrirtæki til að taka þátt með því að flagga regnbogafánum og jafnvel standa fyrir viðburðum. Áhugasamir geta haft samband á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.
Nánari upplýsingar og yfirlit yfir viðburði má finna á vefsíðunni www.hinseginhatid.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










