Ungmennahúsið í Rósenborg fagnar fjölbreytileikanum þennan mánuðinn með því að bjóða í Hinsegin apríl. Undanfarin ár hefur starf Hinsegin Norðurlands verið sívaxandi í aprílmánuði og af því tilefni hefur Ungmennahúsið ákveðið beina athygli fólks að starfinu sem þetta unga fólk stendur fyrir.
Hinsegin Norðurland er félagskapur hinsegin fólks á Norðurlandi og er einn af kjarnaklúbbum Ungmennahúss. Þau hafa staðið fyrir Dragkeppni undanfarin ár og nú hafa fleiri viðburðir bæst við, bíókvöld, förðunarnámskeið og svo Dragkeppnin sjálf þann 29. apríl.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Í kvöld, miðvikudaginn 12. apríl kl.20, mun Hinsegin Norðurland sýna kvikmyndina Priscilla, queen of the desert í Ungmennahúsinu og eru allir velkomnir.











