MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Hildur Eir með nýtt verk í Pastel

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hildur eir
kaffid.is

Verk eftir Hildi Eir Bolladóttur er komið út í Pastel ritröð á vegum Flóru menningarhúss í Sigurhæðum á Akureyri. Verkið ber titilinn Prestur fer á stefnumót og er mögnuð og hárbeitt smásaga.

Eins og kunnugt er þá er Hildur Eir skáld og líka prestur við Akureyrarkirkju og hefur hún áður gefið út þrjár bækur; Hugrekki saga af kvíða, Líkn og Meinvarp.
Prestur fer á stefnumót er eins og önnur Pastel verk gefið út í 100 númeruðum og árituðum eintökum og verður ekki endurútgefið. Verkið er númer 42 í Pastel ritröð og er seinasta verkið í röðinni, en Flóra hefur nú staðið að ritröðinni í áratug, lengst af í samstarfi við Menningarsjóð Akureyrar, listamenn ritraðarinnar, Uppbyggingasjóð Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Útgáfufélagið og fleiri góða aðila.

Pastelritin eru útlitshönnuð og sett upp fyrir prentun hjá Cave Canem hönnunarstofu og er prentun í umsjón Prentsmiðjunnar á Akureyri.
Hægt er að nálgast eintak á www.pastel.is og útgáfuhóf verður í Sigurhæðum á sumardaginn fyrsta.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026