MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hildur Eir heldur utan um nýjan stuðningshóp Píeta

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hildur eir
kaffid.is

Í haust fer Píeta af stað með stuðningshóp í Akureyrarkirkju fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi.

„Jafningjastuðningur hefur margsannað sig þegar kemur að áföllum og sorgum lífsins. Það er eitthvað sérstakt sem gerist þegar fólk deilir reynslu og treystir hvert öðru fyrir eigin hugsunum og líðan þó ekki sé nema það að þoka einsemdarinnar hverfur. Það er svo merkilegt hvað traust og samlíðan gerir mikið fyrir okkar sárustu reynslu og tilfinningar. Í svona starfi eru gæðin fyrst og fremst fólgin í tjáningu og hlustun en þá er líka dýrmætt að hafa reyndan hópstjóra sem heldur utan um stundina. Séra Hildur Eir Bolladóttir mun taka það hlutverk að sér,“ segir í tilkynningu Píeta.

Hópurinn mun hittast annan mánudag í mánuði í kapellu Akureyrarkirkju og hefst samveran klukkan 20:00. Fyrsta samvera er 8. september næskomandi og skráning fer fram á fésbókarviðburði sem er að finna hér: https://fb.me/e/7z1LOMcag

Öll hjartanlega velkomin.

Hildur Eir heldur utan um nýjan stuðningshóp Píeta

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026