Hildur Eir gefur út ljóðabók
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Séra Hildur Eir Bolladóttir sendi á dögunum frá sér ljóðabókina Líkn. Þetta er fyrsta ljóðabók Hildar en Forlagið stendur að útgáfu bókarinnar.
Í umsögn um bókina segir:
Séra Hildur Eir Bolladóttir er prestur í Akureyrarkirkju. Hún hefur vakið athygli fyrir beinskeittar predikanir, sjónvarpsþætti og pistla. Hún hefur áður gefið út bókina Hugrekki – sögu af kvíða sem þótti einlæg og fyndin þrátt fyrir erfitt viðfangsefni. Bókin var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna árið 2017.Hér yrkir Hildur Eir um söknuð og trega og þá hreinsun sem á sér stað í kjölfarið. Hildi er einkar lagið að fjalla um erfiðar tilfinningar á hispurslausan hátt og það sem helst líknar mannssálinni
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










