Sigurvegari í flokki einstaklinga í Skeggkeppni Mottumars árið 2023 er Helgi Rúnar Bragason. Helgi Rúnar safnaði 2.210.001 krónu í Mottumars í ár.
Helgi Rúnar hefur náð eftirtektarverðum árangri í Skeggkeppni Mottumars undanfarin tvö ár, en í heildina hefur hann safnað rúmlega 3,5 milljónum króna. Helgi Rúnar var leystur út með ferð í Skógarböð á Akureyri og ævintýraveislu á RUB23.
UMMÆLI