Heimir Örn Árnason og Hreinn Þór Hauksson hafi báðir komist að samkomulagi við KA að spila með liðinu í vetur í Grill66 deild karla. Þetta eru risatíðindi enda báðir gríðarlega góðir leikmenn, sem munu koma til með að stryrkja liðið töluvert.
Þessa tvo kappa þarf vart að kynna en báðir hafa þeir leikið með KA á árum áður, sem og Hömrunum og Akureyri undanfarin ár. Heimir Örn getur leikið sem skytta og leikstjórnandi en Hreinn spilar meira í horni og á línu en þessir kappar eru einnig þekktir fyrir það að vera gríðarlega sterkir varnarmenn og hafa löngum stundum bundið varnir þeirra liða sem þeir spila með saman.
KA fagnar því að þessir tveir leikmenn hafi ákveðið að aðstoða uppeldisfélag sitt á komandi leiktíð með því að spila með liðinu. Fyrsti leikur KA er gegn ÍBV U í Grill66 deild karla á morgun í KA-heimilinu. Leikurinn hefst 20:15. Mikið húllumhæ verður í kringum leikinn en KA mun bjóða upp á fríar pylsur ásamt hljómsveit sem mun leika í tjaldi fyrir utan KA-heimilið. Þá verður einnig hoppukastali fyrir börnin.
UMMÆLI