MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Heimahöfn háskólakennslu opnuð formlega

Eftir Ingólfur Stefánsson·
heimahofn-1
kaffid.is

Heimahöfn háskólakennslu, sem er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara, var opnuð formlega af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mánudaginn 17. ágúst síðastliðinn.

Markmið verkefnisins er að styðja við faglega þróun á sviði háskólakennslu með opnum starfsþróunarnámskeiðum á netinu, bæði á íslensku og ensku. Verkefnið er unnið með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Heimahöfn háskólakennslu opnuð formlega

Í tilefni opnunarinnar var haldið málþing þar sem þemað var mikilvægi faglegrar kennsluþróunar í háskólum. Á málþinginu var fjallað um mikilvægi kennsluþróunar í háskólum, alþjóðlega strauma á sviðinu og framtíðarsýn um samstarf og gæði í íslensku háskólakerfi. Meðal þeirra sem tóku til máls voru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, og dr. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi í Háskólanum á Akureyri og John Baird, kennsluráðgjafi í Háskólanum í Reykjavík.

Skýr vilji til aukins samstarfs

Í tengslum við málþingið tóku fundargestir, sem komu frá öllum háskólum landsins, þátt í rafrænni könnun um stöðu og framtíð kennsluþróunar í íslenskum háskólum.

Heimahöfn háskólakennslu opnuð formlega

Niðurstöðurnar sýndu afgerandi samhljóða viðhorf meðal þátttakenda varðandi mikilvægi þess að efla kennsluþróun til að bæta gæði náms og kennslu og að þróuð verði samræmd nálgun á sviðinu milli háskóla.

Þegar spurt var hvað myndi helst njóta góðs af auknu samstarfi háskóla nefndu flestir starfsþróun háskólakennara, sameiginleg úrræði og sérfræðiþekkingu, sem og tengslanet og samfélög þvert á stofnanir. Í opnum svörum um mikilvægustu skrefin á næstu 12 mánuðum komu fram fjölbreyttar en samhljóma áherslur. Þar á meðal var aukið svigrúm kennara til að sinna kennsluþróun, tenging kennslu við launa- og framgangskerfi, formlegt samstarf háskóla, hugsanlega með aðkomu ráðuneytis, og áframhaldandi stuðningur við og innleiðing Heimahafnar. Þátttakendur lýstu jafnframt eindregnum vilja til samstarfs.

Nánari upplýsingar um Heimahöfn háskólakennslu og námsframboð verða birtar á næstu vikum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026