Ungmennanámskeiðið „Heilbrigð samskipti“ er nýtt námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára.
Námskeiðið er til að fræða um heilbrigð samskipti, geta greint óheilbrigð samskipti og þekkja rauðu flögginn sem geta bent til ofbeldis eða áreitis. Einnig er lögð áhersla á að ungmenni þekki líkama sinn og geti greint ef um ofbeldi eða áreiti er að ræða og að lokum, hvað þau geta gert ef þau verða fyrir ofbeldi.
Aflið stendur fyrir námskeiðinu. Tveir hópar verða í boði dagana 2.apríl til 17.apríl og 23.apríl til 9.maí. Hóparnir verða á miðvikudögum og föstudögum frá 14:00 til 16:00.
„Námskeiðið okkar um heilbrigð samskipti er hluti af mikilvægu forvarnarstarfi sem miðar að því að fræða ungmenni á aldrinum 13-16 ára um jákvæð og virðingarfull samskipti. Á námskeiðinu læra þau að þekkja heilbrigð samskipti, greina óheilbrigð mynstur og bera kennsl á rauð flögg sem geta bent til ofbeldis eða áreitis,“ segir Ída Irene Oddsdóttir, kynningastýra Aflsins.
„Við leggjum einnig áherslu á að ungmenni læri að þekkja eigin mörk og líkama, þannig að þau geti greint ef þau verða fyrir ofbeldi eða áreiti. Að auki fá þau fræðslu um hvert þau geta leitað og hvaða úrræði eru í boði ef þau eða einhver í kringum þau upplifir ofbeldi.“
Jóhanna Margrét Ásgeirsdóttir, fræðslustýra samtakanna, mun leiða námskeiðið en hún hefur verið ráðgjafi hjá Aflinu og er hjúkrunarfræðingur með diplómu í jákvæðri sálfræði og markþjálfi. Jóhanna hefur mikla reynslu af fræðslu um ofbeldi og heilbrigð samskipti en hún sér um önnur námskeið Aflsins þar sem hún hefur aflað sér reynslu í að skapa öruggt og stuðningsríkt umhverfi fyrir alla þátttakendur. Það er mjög mikilvægt að námskeiðið sé leitt af leiðbeinanda sem þátttakendur geta treyst og myndað samband við.
Foreldrar eru hvattir til að skrá börnin sín eingöngu í samráði við þau en þátttakendur geta líka sótt sjálfir um að taka þátt en allir foreldrar verða upplýstir um þátttöku barna sinna. Foreldrar og þátttakendur munu fá ítarlegar upplýsingar um efnistök námskeiðsins áður en það hefst. Fyrir námskeiðið verður haldinn kynningarfundur með foreldrum þar sem farið verður yfir markmið og innihald námskeiðsins.
Skráning og fyrirspurnir á aflidak@aflidak.is
„Mikilvægt er að taka fram að námskeiðið er eingöngu fræðsla og forvörn, ekki ráðgjöf, og ungmennin sem taka þátt eru ekki skjólstæðingar samtakanna. Markmiðið er að veita þeim þekkingu og verkfæri til að efla öryggi sitt og vellíðan í samskiptum,“ segir Ída Irene að lokum.