Heilaleikfimi er heilsubót

Ef þú ert MA-ingur klæjar þig örugglega í fingurna að leiðrétta mig. Á þetta ekki að vera: Heimaleikfimi er heilsubót, hressir mann upp og gerir mann stífan? Jú, það er sannarlega rétt og heimaleikfimin er góð fyrir líkama og sál en hún er því miður ekki viðfangsefnið í þetta skiptið. Mig langar nefnilega að beina athyglinni að þeirri þjálfun sem heilinn okkar þarfnast.
Þrátt fyrir að vera 30 ára gömul er ég lítið fyrir samfélagsmiðla. Ég er löt að taka listrænar myndir til að deila á Instagram, ég eyddi nýlega Snapchat og mér dettur ekki til hugar að búa til myndband á Tik Tok. Það er margt jákvætt við samfélagsmiðla en það eru líka ákveðnir þættir sem eru áhyggjuefni. Hver kannast ekki við tilfinninguna eftir langt doomscrolling en á meðan því stendur breytumst við yfirleitt í hálfgerðar afturgöngur sem stara límdar á skjáinn á meðan tíminn flýgur frá okkur. Ef það væri tekið heilalínurit á meðan við festumst til dæmis á Tik Tok er ég viss um að það mælist ekki mikil virkni í heilanum. Ég hef smá áhyggjur hvað við sækjumst mikið í heilalausa afþreyingu eins og sjónvarpsgláp eða það að vafra um netið. Áreitið, stressið og streitan er svo mikil að þegar við eigum lausa stund veljum við mörg hver að gera eitthvað sem krefst lítillar hugsunar.
Ég held að flestir séu sammála um það að heilaleikfimi er mikilvæg. Ávinningur af henni eru meðal annars myndun nýrra taugamóta, bæta minni og ákvarðanatöku, auka drifkraft og svo má ekki gleyma minni líkum á heilabilun og Alzheimer’s. Hér gildir svolítið lögmálið: If you don’t use it, you’ll lose it. Þetta er nákvæmlega eins og með vöðva og líkamsrækt, ef við hættum að gera styrktaræfingar munu vöðvarnir rýrna. Á sama hátt mætti segja að heilinn rýrnar ef við notum og þjálfum hann ekki reglulega.
Góðu fréttirnar eru hins vegar að það eru margar leiðir til að þjálfa heilann. Hver og einn þarf bara að finna hvað hentar honum alveg eins og sumir kjósa að fara í ræktina á meðan aðrir spila fótbolta og enn aðrir fara í fjallgöngur til að hreyfa sig. Dæmi um heilaleikfimi eru púsl, Sudoku, krossgátur, skák og ýmis spil. Hefðbundið nám, til dæmis tungumálanám, er augljóslega mjög góð heilaleikfimi en síðan geta listrænar athafnir eins og það að teikna, mála eða spila á hljóðfæri verið leið til að þjálfa heilann. Hugleiðsla, núvitund og jóga nidra eru önnur dæmi ásamt því að dansa og lesa. Síðast en ekki síst má nefna ýmsa sérstaka leiki á netinu sem eru hannaðir til að örva heilann þannig það má sannarlega nota netið til að virkja heilann. Það er því úr mörgu að velja, spurningin er bara hvað heillar þig.
Það er tilvalið að hafa heilaleikfimi á bak við eyrað svona þegar haustið fer að ganga í garð. Þá byrjar rútínan hjá flestum og getur verið gott að setjast aðeins niður og skipuleggja hvernig maður vill verja tímanum sínum. Margir upplifa tímaskort en þá er um að gera að reyna að samnýta athafnir, t.d. getur ákveðin heilaleikfimi líka verið hluti af áhugamáli eða félagslegum hittingum. Það er alltaf auðvelt að koma með afsakanir en það er miklu vænlegra til árangurs að beina athyglinni að mögulegum lausnum.
The more you exercise the brain, the fitter it becomes
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










