Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Haustsýning Norðlenskrar hönnunar og handverks

Eftir Ingólfur Stefánsson·
9_sept_DSC_0380_merkt
kaffid.is

Boðið verður til skapandi og skemmtilegrar Haustsýningar Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ um næstu helgi, 17. til 18. október klukkan 11 til 17. Sýningin er árleg og hefur fyrir löngu skapað sér sess meðal fjölmargra Norðlendinga og gesta.

Vandaðar vörur úr héraði, milliliðalaust úr höndum hönnuða, handverksfólks og sælkerameistara. Glæsilegur kökubasar góðgerðarfélaga, kertasala og meira.

Ilmandi kaffi á könnunni fyrir gesti og tilvalinn vettvangur til gera sér glaðan dag og gera góð kaup í leiðinni. Frítt er inn á viðburðinn og öll hjartanlega velkomin.

Tengdar greinar

Uppfært: 12. október 2026