MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Haustsöfnun Barnaheilla hefst með sölu á Vigdísarstokki

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Barnaheill_Spil2026_Vigdis_SunnaBen
kaffid.is

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hóf sína árlega haustsöfnun fimmtudaginn 27. ágúst, með sölu á vönduðum spilastokki sem var unninn í samvinnu við Rán Flygenring með myndum úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann.

Allur ágóði af sölunni rennur til alþjóðlegra verkefna Barnaheilla sem styðja börn sem búa við ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun og vernd. Um er að ræða fallega gjafavöru með mikilvægan tilgang. Sölufólk mun selja stokkinn á Akureyri næstu daga með því að ganga í hús og selja spilastokkinn fyrir utan verslanir og verslunarkjarna.

„Ég er þakklát fyrir áratuga framlag samtakanna í þágu réttinda, verndar og velferðar barna, bæði á Íslandi og víða um heim,“ sagði Halla Tómasdóttir, annar kvenforsetinn í sögu Íslands, þegar hún veitti fyrsta Vigdísarstokknum viðtöku á Bessastöðum í gær.

Haustsöfnun Barnaheilla hefst með sölu á Vigdísarstokki

Verndari Barnaheilla frá upphafi

Vigdís Finnbogadóttir tók þátt í stofnun félagsins á Íslandi árið 1989 og er nafn Barnaheilla úr hennar smiðju. Vigdís hefur verið verndari samtakanna frá upphafi.

Allur ágóði af sölu stokksins rennur til alþjóðlegra verkefna Barnaheilla í Síerra Leóne, Madagaskar, Tansaníu og Írak, þar sem Barnaheill vinna mikilvæg verkefni sem styðja börn sem búa við stríð, ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun.

Með Vigdísarstokknum vilja Barnaheill heiðra framlag Vigdísar og þau gildi sem hún hefur alla tíð staðið fyrir; jafnrétti, sjálfbærni, menntun og virðingu fyrir öllum börnum.

Hægt verður að kaupa Vigdísarstokkinn hér Vigdísarstokkur – Barnaheill.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026