Samherji er umsvifamikið fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu í kaupum á þjónustu, hvort sem um er að ræða fyrir landvinnslur félagsins eða togaraflotann. Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir Eyjafjarðarsvæðið vel þekkt sem þekkingarsetur í haftengdri starfsemi og Samherji leggi áherslu á samvinnu um þróun og hönnun sértækra tæknilausna.
Samherji er helsti viðskiptavinur vélaverkstæðis N.Hansen á Akureyri, sem sérhæfir sig í nýsmíði, viðhaldi og viðgerðum fyrir sjávarútveginn. N. Hansen hefur nýverið fjárfest í hátæknibúnaði, þrívíddarprenturum og tengdum hugbúnaði, til að prenta hluti úr plasti eða málmi.
Möguleikarnir nánast endalausir með þrívíddarprentun


„Fiskvinnsluhúsin á Akureyri og Dalvík eru mjög tæknivædd og sömu sögu er að segja um fiskiskipin. Vél- og rafeindabúnaður er sérhæfður og getur verið erfitt að fá varahluti með skömmum fyrirvara. Þess vegna getur skipt sköpum að hafa gott aðgengi að sérhæfðri þjónustu og vélaverkstæði N. Hansen er gott dæmi um fyrirtæki með hátt þjónustustig.
Ef við Íslendingar ætlum að vera áfram í fremstu röð er nauðsynlegt að leggja áherslu á nýsköpunar- og þróunarvinnu. Mér er óhætt að fullyrða að hjá N. Hansen ríkir skapandi andrúmsloft frumkvöðla sem við Íslendingar erum þekktir fyrir um víða veröld þegar kemur að

Markmiðið er að veita góða þjónustu
Arnór Ingi Hansen hjá N. Hansen segir að búnaðurinn hafi þegar vakið athygli, enda sárafáir málmprentarar í notkun hérlendis.
„Beiðnir um þjónustu bárust áður en við vorum búin að koma öllum búnaðinum fyrir, þannig að þetta fer vel af stað. Nýlegt dæmi um verkefni er að lítið plasthús ofan á vökvaloka brotnaði, ekki var hægt að útvega nýtt hús og því var lokinn óstarfhæfur. Með þrívíddartækni var hægt að teikna sambærilegan hlut og prenta á tiltölulega skömmum tíma, þannig losnaði

Gamla góða handverkið lifir áfram
„Gamla góða handverkið verður auðvitað áfram við lýði, þessi tækni er viðbót og stuðningur við núverandi starfsemi. Búnaðurinn er töluverð fjárfesting fyrir lítið fyrirtæki eins og okkar en við erum að horfa til framtíðar. Markaðurinn er kröfuharður og við leggjum metnað okkar í að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til okkar, það er bara svo einfalt,“ segir Ingi Hansen framkvæmdastjóri N. Hansen.
Nokkrar myndir af íhlutum sem prentaðir hafa verið hjá N.Hansen. Einnig mynd af hluta búnaðarins.
Frétt og myndir: Samherji.is