NTC

Harpa og Hulda Björg endurnýja samninga við Þór/KA

Harpa og Hulda Björg endurnýja samninga við Þór/KA

Stjórn Þórs/KA hefur samið við tvær af reyndustu knattspyrnukonum félagsins, Hörpu Jóhannsdóttur og Huldu Björg Hannesdóttur, til næstu tveggja ára. 

Þær Harpa og Hulda Björg undirrituðu nýja samninga út tímabilið 2026 á föstudaginn. Báðar hafa verið lengi hjá Þór/KA, Harpa að hefja sitt 12. tímabil í meistaraflokki og Hulda Björg sitt 10. tímabil. Þær bætast í hóp eldri og yngri leikmanna sem hafa nú þegar endurnýjað sína samninga á undanförnum vikum. Enn og aftur er ánægjulegt að sjá heimakonurnar í Þór/KA halda tryggð við félagið og taka slaginn áfram í því metnaðarfulla starfi sem fram undan er og þeirri vegferð að vera ávallt eitt af þeim liðum sem keppir um þá titla sem í boði eru hér á landi. 

Báðar náðu þær Harpa og Hulda Björg leikjaáföngum fyrir félagið á nýafstöðnu tímabili. Hulda Björg spilaði sinn 200. leik með meistaraflokki Þórs/KA í Keflavík 24. júlí. Í þeim leik spilaði Harpa sinn 99. leik fyrir Þór/KA og átti þar stóran þátt í 1-0 sigri liðsins. Sex dögum síðar spilaði hún 100. leikinn gegn Tindastóli á Sauðárkróki.

Nánar má lesa um þær á vef Þór/KA með því að smella hér. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó