beint flug til Færeyja

Hárkollugluggi í tilefni af Bleikum október

Hárkollugluggi í tilefni af Bleikum október

GLUGGINN í Hafnarstræti 88, vinnustofu myndlistarkonunnar Brynju Harðardóttur Tveiten sýnir þessa dagana heklaðar og prjónaðar hárkollur og húfur. Sýningin er sett upp í tilefni af Bleikum október, árlegu árveknis- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum.

Brynja  kláraði krabbameinsmeðferð í árslok 2021 eftir að hafa greinst með aggressívt brjóstakrabbamein. Hún missti hárið og henni til hughreystingar og þeim hjónum til gleði og sálufriðar tók eiginmaður hennar til þess ráðs að prjóna og hekla á hana höfuðföt. Sum skondnari en önnur. Í meðferðarlok virkuðu höfuðfötin á Brynju sem áminning um að krabbameinið gæti tekið sig upp og að hún gæti þurft aftur á þeim að halda. Hún setti þau því í gamalt koddaver og kom því fyrir lengst inni í geymslu. Bleikur október hefur að sama skapi vakið með henni blendnar tilfinningar og því fannst Brynju tilvalið og tímabært að sækja hárkollurnar úr geymslunni, æfa sig í að láta ekki ótta ná tökum á sér og lyfta upp þessum tveimur kærleiksgjörningum. Taka bitið úr óþægilegum hugrenningartengslum, hvetja fólk til að sína samstöðu, skemmta sér fallega og iðka kærleiksgjörninga í eigin garð og annarra.

Sýningin er aðgengileg allan sólarhringinn þar sem hennar er notið utan frá séð.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó