Handtekinn á Akureyri með 53 kg af hassi

Þýskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa staðið að innflutningi á 53 kílóum af hassi til landsins. Efnin voru flutt frá Spáni til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar. Greint er frá á mbl.is.

Lögreglan lagði hald á fíkniefnin við leit í Peugeot bifreið þar sem efnin voru falin. Maðurinn keyrði frá Seyðisfirði til Akureyrar þar sem hann var handtekinn.

Ákæruvaldið fer fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Auk þess er krafist að bifreiðin og efnin verði gerð upptæk.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!