Mynd: Samherji.is

Handsalaður samningur árið 1983 entist út ævistarfið

Hákon Þröstur Guðmundsson útgerðarstjóri Samherja lætur af störfum í dag, 1. apríl eftir að hafa starfað hjá félaginu til sjós og lands í nærri 43 ár. Hákon Þröstur réðst til félagsins haustið 1983, aðeins nokkrum vikum eftir að frændurnir Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir og Þorsteinn Már Baldvinsson höfðu keypt hlutafé Samherja hf. í Grindavík, sem gerði út togarann Guðstein GK 140. Fjallað er um feril hans á vef Samherja í dag.

Hann segir að sjómennskan hafi breyst mikið á starfsferlinum, bæði hvað varðar aðbúnað skipverja og tæknilega fullkomnun. Ævintýri líkast hafi verið að fylgjast með uppbyggingu Samherja.

Nýir tímar í sjávarútvegi – flutningur norður

„Ég var búinn með Stýrimannaskólann og var háseti á togaranum Karlsefni RE 24. Efnahagsástandið í þjóðarbúinu var vægast sagt bágborið og útgerðin svo að segja í molum, þannig að útlitið var ekki beysið en hugurinn stefndi engu að síður á sjóinn. Helgi Kristjánsson skipstjóri benti mér á að nýir tímar væru að renna upp í sjávarútvegi, frystitogarar væru framtíðin og hann hvatti mig til að tala við strákana sem væru að breyta Guðsteini GK í frystiskip norður á Akureyri, sem úr varð. Ég talaði fyrst við Þorstein Vilhelmsson og nokkrum dögum síðar handsöluðum við Þorsteinn Már samkomulag um að ég Seltirningurinn flyttist norður um haustið. Það hvarflaði náttúrulega ekki að mér að þarna væri verið að semja um farsæla samvinnu til 43 ára, sjálft ævistarfið.

Jafnframt lögðum við á ráðin um að ég færi fyrst í eins konar starfsmenntun hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur við að meðhöndla frosinn fisk og það gekk upp.“

Hákon Þröstur flutti norður í september, þá voru breytingar á Guðsteini vel á veg komnar.

„Maður skynjaði strax að þeir frændur trúðu virkilega á þetta verkefni og ég varð fljótt á sömu skoðun. Auðvitað heyrðust líka efasemdaraddir, sem var ósköp skiljanlegt í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu á þessum tíma.“

Fyrst háseti en skipstjóri aðeins 26 ára

Akureyrin EA 10 fór í fyrstu veiðiferðina í desember 1983. Hákon, lærður skipstjórnarmaðurinn, var háseti.

„Já, ég var háseti, með vilyrði fyrir stöðu stýrimanns þegar fram í sækti og hlutirnir æxluðust þannig að ég var fljótlega settur í stöðu annars stýrimanns. Um tveimur árum síðar var staðan sú að flestir yfirmenn voru í fríi og úr varð að ég 26 ára strákurinn fór í minn fyrsta túr sem skipstjóri á þessu mikla aflaskipi. Það var mok fiskerí, góður þorskur í Reykjafjarðarálnum og svo fylltum við skipið af karfa vestur af landinu. Eftir þennan fyrsta túr sneru yfirmennirnir til baka og ég varð háseti á nýjan leik. Þetta lýsir andrúmsloftinu, gagnkvæmt traust og alger samstaða um að ná árangri.“

Einstök samvinna starfsfólks Samherja

„Á þessum tímamótum kemst maður ekki hjá því að leiða hugann að hinum fjölbreyttu verkefnum á starfsferlinum, enda er ég þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa verið liðsmaður svo að segja frá upphafi. Samstaða starfsfólksins við að ná settum markmiðum er einstök, enda valinn maður í hverju plássi. Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með starfseminni í þessi 43 ár. Ég mun auðvitað sakna þess öfluga fólks sem starfar hjá Samherja en núna skapast aukið svigrúm til að sinna fjölskyldunni og vinum, útivist, fjallamennsku og fleiru skemmtilegu. Ég þakka kærlega fyrir mig og held á vit nýrra ævintýra,“ segir Hákon Þröstur Guðmundsson.

Nánar á vef Samherja

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!