Handhægu málmleitartæki bætt við búnað lögreglumanna

Handhægu málmleitartæki bætt við búnað lögreglumanna

Einn liður lögreglunnar í að mæta auknum vopnaburði og ofbeldi í samfélaginu er að bæta handhægu málmleitartæki við búnað lögreglumanna. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá því í tilkynningu á Facebook í gær að útköll síðustu vikna beri merki um aukið ofbeldi og vopnaburð í samfélaginu.

Í tilkynningu lögreglunnar var ítrekað bann við vopnaburði og viðurlög við slíku. Málmleitartækið sem bætt hefur verið við búnað lögreglumanna er lítið og má nota til þess að kanna hvort vopn séu innan klæða.

Í umfjöllun RÚV um málið segir að aukin harka hafi færst í fíkniefnaheiminn á Norðurlandi eystra að undanförnu. Rætt er við Berg Jónsson, yfirlögreglumann Lögreglunnar á Norðurlandi eystra sem tekur dæmi um lögreglu sem var við handtöku um síðustu helgi.

Þar hafi lögreglumaður verið með mann í taki sem svo sneri sér skyndilega við vopnaður hnífi í hinni hendinni. Við slíka nálægð segir Bergur varnarbúnaðinn hafa afar lítið að segja.

Viðtal við Berg má finna í spilara RÚV með því að smella hér

Sambíó
Sambíó