Hagnaður Samherja hf. nam 14,4 milljörðum króna á árinu 2017 og hækkaði lítillega á milli ára en hagnaðurinn árið 2016 var 14,3 milljarðar.
8,5% af hagnaði félagsins verða greidd í arð til hluthafa félagsins að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.
„Samherji skilaði góðri afkomu á síðasta ári eins og undanfarin ár. Svo góð niðurstaða er ekki sjálfgefin við núverandi aðstæður heldur afrakstur mikillar samvinnu starfsmanna Samherja sem og samstarfsaðila víðsvegar um heiminn. Við gleðjumst að sjálfsögðu yfir því,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja þegar ársuppgjör fyrir árið 2017 var kynnt að loknum aðalfundi og fram kemur á vef fyrirtækisins.
Samanlagðar tekjur dóttur- og samstarfsfélaga Samherja námu 77 milljörðum króna en námu 84,8 milljörðum árið 2016. Rekstrargjöldin námu 63,7 milljörðum króna árið 2017 miðað við 68 milljarða 2016.
Á vef Samherja kemur einnig fram að stærsta breyting fyrirtækisins á liðnu ári hafi verið skipting þess upp í tvö félög. Innlend starfsemi var þannig aðgreind með skýrari hætti frá erlendri. Heyrir innlenda starfsemin undir Samherja en Samherji Holding ehf. tók við erlendum eignum.
UMMÆLI